Talents tekur að sér endurtekin skrifstofuverkefni, heldur utan um eftirfylgni og sér um afgreiðslu samkvæmt skýru verklagi. Þið fáið aðstoð við daglegan rekstur án þess að þurfa að ráða í fullt starf.
Aðgangur að gervigreind er aðeins hluti af lausninni. Það þarf líka að skilgreina verkefnin, yfirfara niðurstöður og fylgja málum eftir. Talents tekur þessa vinnu að sér svo viðskiptavinurinn geti einbeitt sér að eigin rekstri.
Ef fyrirspurnir bíða afgreiðslu, upplýsingar vantar í sölukerfið og vöruskráningar þurfa uppfærslu. Þetta eru verkefni sem skipta máli en sitja oft á hakanum þegar annað kallar á athygli starfsfólks.
Stafræn skrifstofuaðstoð Talents hjálpar ykkur að halda þessum verkefnum á hreyfingu. Við skilgreinum umfangið með ykkur, setjum upp verklag og sjáum um framkvæmdina.
Hvað getum við tekið að okkur?
Þjónustan er sniðin að þörfum fyrirtækisins og getur meðal annars náð yfir:
- Umsjón með fyrirspurnum: Skráningu, flokkun og eftirfylgni svo erindi komist til réttra aðila.
- Viðhald sölukerfis: Uppfærslu tengiliða, stöðu sölutækifæra og næstu skrefa.
- Vöru- og vefskráningar: Innsetningu og uppfærslu upplýsinga, mynda og vörulýsinga.
- Gagnaöflun og skjalavinnslu: Söfnun gagna, skipulag skjala og eftirfylgni vegna upplýsinga sem vantar.
- Reglulegar samantektir: Yfirlit yfir afgreidd verkefni, opin mál og atriði sem þarfnast ákvörðunar.
Hvað bætist við þegar gervigreind er þegar til staðar?
Gervigreind getur útbúið drög, flokkað upplýsingar og stytt vinnslu. Samt þarf einhver að yfirfara niðurstöður, afla þess sem vantar og fylgja málum til enda.
Hjá Talents er starfsfólk ábyrgt fyrir framkvæmd samkvæmt samþykktu verklagi. Gervigreind og sjálfvirkni eru nýtt þar sem þær eiga við, með viðeigandi aðgangi og reglum um meðferð gagna.
Þið þurfið því ekki sjálf að halda utan um hvert handtak eða fylgjast stöðugt með því hvað hefur stöðvast.
Tvær leiðir eftir umfangi
Fyrirtæki þurfa mismikla aðstoð við daglegan rekstur. Sum vilja fela okkur afmarkaða, endurtekna verkþætti en önnur þurfa starfsmann sem sinnir verkefnum þeirra allan vinnudaginn.
Þjónustusamningur um skrifstofuaðstoð 99.900 kr. + VSK á mánuði
Felur í sér allt að 20 vinnustundir á mánuði og hentar fyrirtækjum sem þurfa reglulega aðstoð við skráningar, gagnaöflun, skjalavinnslu, viðhald sölukerfis eða eftirfylgni fyrirspurna. Samið er um tímafjölda og verkefnum forgangsraðað innan hans.
Starfsmaður í fullu starfi 499.000 kr. + VSK á mánuði
Þessi leið hentar fyrirtækjum sem hafa næg verkefni til að nýta fullt starf og þurfa samfellda aðstoð. Starfsmaður sinnir umsömdum verkefnum viðskiptavinarins og vinnur eftir skilgreindu verklagi í samstarfi við teymi hans.
Í báðum tilvikum eru umfang, hæfniþörf, aðgangsheimildir og þjónustugjald staðfest áður en samstarf hefst. Skýrt er hvað Talents afgreiðir sjálfstætt og hvað þarf samþykki viðskiptavinar. Uppsetning sjálfvirkni, kerfistengingar og sérhæfð ráðgjöf eru metin sérstaklega.
Skýrt umfang frá upphafi
Við byrjum á einu afmörkuðu verkefni eða verkferli. Saman ákveðum við hvað á að afgreiða, hversu oft og hvernig árangur er metinn.
Það liggur skýrt fyrir hvað Talents má afgreiða sjálfstætt, hvað þarf samþykki ykkar og hvert á að beina óvenjulegum málum. Umfang og þjónustugjald eru ákveðin út frá verkefnum, magni og þjónustustigi.
Þjónustan hentar fyrirtækjum sem þurfa reglulega aðstoð og vilja gefa eigin starfsfólki meira svigrúm til að sinna viðskiptavinum og sérhæfðum verkefnum.
Hvaða verkefni sitja sífellt á hakanum hjá ykkur? Hafið samband við contact@talents.is og við skoðum hvar aðstoðin nýtist best.