Styrktu netöryggið með sérfræðingi þegar þörfin er mest
Vefveiðar, gagnagíslatökur og árásir á skýjaþjónustur geta raskað rekstri fyrirtækja af öllum stærðum. Hversu fljótt teymið greinir atvik og bregst við getur ráðið miklu um umfang tjónsins. Talents útvegar vottaða sérfræðinga í netöryggi til að sinna afmörkuðum verkefnum, styrkja tækniteymi eða bæta við vöktun utan dagvinnutíma. Fyrir fyrsta samtalið nægir að vita hvaða kerfi skipta þig mestu máli, hver sinnir vöktun í dag og á hvaða tímum vantar stuðning. Við notum þær upplýsingar til að afmarka verkefnið, finna sérfræðing með viðeigandi reynslu og leggja fram tilboð með umfangi, kostnaði og mögulegum upphafsdegi.
Hvaða hæfni þarf í verkefnið?
Talents hefur á skrá vottaða sérfræðinga í netöryggi á Filippseyjum sem geta komið inn í verkefni með skömmum fyrirvara. Þeir vinna í fjarvinnu með teymi viðskiptavinarins og fylgja þeim verkferlum sem það notar. Val á sérfræðingi ræðst af kerfunum sem þú notar, verkefninu sem á að leysa og reynslu viðkomandi af sambærilegum aðstæðum.
- Netkerfi og eldveggir. Ef verkefnið er að setja upp eldvegg, fara yfir stillingar eða taka við daglegum rekstri leitum við að reynslu af þeim búnaði sem fyrirtækið notar. Cisco CCNA og CCNP og Fortinet NSE 4 og NSE 7 eru dæmi um vottanir og próf á þessu sviði.
- Öryggisvöktun og viðbrögð. Ef þörfin er að manna vakt skiptir reynsla af því að meta viðvaranir, greina ógnir og atvik og afhenda opin mál máli. Viðeigandi bakgrunnur getur til dæmis verið CompTIA Security+, CompTIA CySA+ eða Microsoft SC-200 ásamt reynslu af öryggistólum fyrirtækisins. Ef fyrirtækið notar Microsoft Defender XDR eða Microsoft Sentinel getur hentað að fá sérfræðing sem hefur lokið SC-200 prófinu og hefur reynslu af daglegri vöktun í sambærilegu umhverfi.
- Skýjaöryggi. Þegar fyrirtæki flytur þjónustu í skýið eða þarf yfirferð á núverandi umhverfi getur sérfræðingur skoðað stillingar, aðgangsheimildir og vöktun og sinnt reglulegu eftirliti. AWS Certified Security – Specialty og ISC2 CCSP eru dæmi um vottanir á því sviði.
- Ráðgjöf og stjórnun upplýsingaöryggis. Ef stjórnendur þurfa að forgangsraða úrbótum getur verkefnið falist í áhættumati, mótun öryggisstefnu og skipulagi öryggisstarfsins með skýrari verkaskiptingu. Þar getur reynsla af stjórnun öryggismála ásamt vottunum á borð við ISC2 CISSP eða ISACA CISM nýst vel.
Af hverju skiptir aðgengi að sérfræðingum máli?
Fá fyrirtæki hafa yfir að ráða fullmönnuðu öryggisteymi sem sinnir vöktun, netkerfum, skýjaöryggi og viðbrögðum við atvikum. Jafnvel þar sem öflugt tækniteymi er til staðar getur vantað reynslu af tilteknu kerfi eða fólk til að sinna vöktun utan hefðbundins vinnutíma.
Ráðning sérfræðings tekur líka tíma. Á meðan staðan er auglýst, umsóknir yfirfarnar og viðtöl tekin þarf áfram að sinna öryggismálum fyrirtækisins. Ein leið til að brúa bilið er að fá utanaðkomandi sérfræðing inn í teymið, til dæmis til að taka við vöktun eða ljúka uppfærslu á eldvegg sem hefur beðið vegna anna.
Viðskiptavinir, samstarfsaðilar og eftirlitsaðilar geta auk þess kallað eftir upplýsingum um öryggisstarfið. Þá þarf fyrirtækið að geta sýnt hver sinnir vöktun, hvernig atvik eru skráð og hver fylgir þeim eftir.
Hvenær hentar að fá utanaðkomandi sérfræðing?
- Smærri fyrirtæki án eigin öryggisvaktstöðvar (SOC). Fyrsta verkefnið getur verið að fara yfir aðgangsheimildir, stilla viðvaranir og ákveða hver taki við þeim. Þannig fær sá sem ber ábyrgð á rekstrinum skýrt verklag til að fylgja.
- Meðalstór fyrirtæki með eigið tækniteymi. Þörfin getur verið afmarkaðri. Teymið ræður vel við daglega vinnu en vantar manneskju á kvöld- eða næturvakt.
- Fyrirtæki með eigið öryggisteymi. Hagkvæmt getur verið að fá utanaðkomandi sérfræðing inn í teymið á meðan ráðið er í lausa stöðu eða til að ljúka verkefni sem bíður, til dæmis uppfærslu eldveggja eða yfirferð á skýjaumhverfi.
Ef markmiðið er að auka vöktun að næturlagi getur tímamunurinn við Filippseyjar nýst vel. Vinnudagur sérfræðingsins þar getur hafist á meðan enn er nótt á Íslandi. Þá þarf að ákveða fyrir fram hvaða tíma vaktin nær yfir, hver hefur heimild til að bregðast við og hvernig opin mál eru afhent teyminu hér heima að morgni. Þetta er allt fest í samningi.
Vandinn kemur í ljós þegar viðvörun berst
Klukkan er hálfellefu á föstudagskvöldi þegar viðvörun berst um grunsamlega innskráningu í tölvupóstkerfi fyrirtækisins. Hún lendir í sameiginlegu pósthólfi sem næsta vakt opnar á mánudag. Kerfið greindi frávikið. Það sem vantaði var manneskja á vakt með skýrt umboð til að bregðast við.
Fyrir stjórnendur skiptir máli að svörin liggi fyrir áður en á reynir. Starfsfólkið þarf að vita í hvern það á að ná og sá sem tekur við málinu þarf að þekkja kerfin og hafa heimild til að grípa inn í. Þrjár spurningar hjálpa til við að sjá hvort svipað bil sé í eigin rekstri.
- Hlutverk. Hver tekur við viðvöruninni og metur hversu alvarleg hún er?
- Heimild. Má sá sem er á vakt loka aðgangi tímabundið eða þarf fyrst samþykki? Í hvern á þá að hringja?
- Tími. Hversu fljótt þarf að hefja greiningu og hvenær þarf ábyrgðaraðili fyrirtækisins að fá að vita af málinu?
Hvernig virkar samstarfið við Talents?
- Við afmörkum þörfina með þér. Þú lýsir kerfunum sem þú notar, núverandi vakt og verkefnunum sem þú vilt fá aðstoð við. Saman skilgreinum við umfangið og þá niðurstöðu sem á að skila. Það leggur grunninn að tilboðinu.
- Við finnum sérfræðing og gerum tilboð. Við veljum sérfræðing með þá reynslu og vottun sem verkefnið kallar á. Í tilboðinu kemur fram reynsla viðkomandi, hvaða verkefnum hann mun sinna, kostnaður og hvenær vinna getur hafist.
- Þú hittir sérfræðinginn. Í kynningarviðtali farið þið yfir sambærileg verkefni og daglegt samstarf við teymið þitt. Þar er gott að taka eitt raunhæft dæmi úr þínum rekstri og ræða hver myndi gera hvað. Að viðtalinu loknu förum við yfir verkaskiptingu og ábyrgð með þér og uppfærum tilboðið ef þörf krefur.
- Við göngum frá samningi og samstarfið hefst. Í samningnum staðfestum við umfang, trúnað, aðgangsheimildir, samskiptaleiðir og viðbragðstíma eftir því sem við á. Sérfræðingurinn fær síðan nauðsynlegar aðgangsheimildir og hefur störf á umsömdum tíma.
Talents ber ábyrgð á þeirri vinnu sem við tökum að okkur og þú hefur tengilið hér á Íslandi sem fylgir verkefninu eftir. Samstarfið getur falist í afmörkuðu verkefni, til dæmis uppfærslu eldveggja eða flutningi kerfa í skýið. Það getur líka hentað til lengri tíma, meðal annars til að styrkja öryggisteymi eða öryggisvaktstöð (SOC).
Dæmi um ákvæði í þjónustusamningi (SLA) fyrir næturvakt
„Vaktin nær yfir [daga og tíma] að íslenskum tíma. Berist viðvörun sem flokkast sem alvarleg samkvæmt [samþykktum viðmiðum] á vaktin að hefja greiningu innan [30 mínútna] frá móttöku. Vaktin má grípa til [fyrir fram samþykktra aðgerða] og tilkynnir atvikið til [ábyrgðaraðila] eftir [samskiptaleið]. Við vaktaskipti skráir vaktin stöðu málsins, næsta skref og hver tekur við.“
Í þessu dæmi miðast viðbragðstíminn við upphaf greiningar. Tímafrestur fyrir næstu stöðuuppfærslu er sérstakt samningsatriði.
Fjögur skref sem þú getur tekið strax
- Veldu eitt mikilvægt kerfi. Byrjaðu til dæmis á að kanna hver hefur stjórn á tölvupósti og léni fyrirtækisins. Skráðu nafn ábyrgðaraðila og hver leysir hann af.
- Afmarkaðu aðganginn. Skráðu hvaða upplýsingar sá sem er á vakt þarf að sjá og hvaða breytingar hann má gera. Ef verkefni krefst aukinna réttinda skaltu ákveða hver samþykkir þau og hvenær þau falla niður.
- Veldu einn stað til að skrá atvik. Fyrir hvert mál þarf að sjást hvenær viðvörunin barst, hvað var gert, hver tók ákvörðun og hver á næsta skref.
- Prófaðu eina afhendingu. Taktu föstudagsdæmið með teyminu. Ef grunur vaknar um að óviðkomandi hafi komist inn í pósthólf, hver fær viðvörunina, hver má loka aðganginum og í hvern er hægt að ná utan vinnutíma? Láttu þann sem á að taka við málinu finna atvikaskrána, símanúmerið og heimildina til að bregðast við. Þar sem viðkomandi þarf að giska er verk að vinna.
Hvar vantar stuðning í þínu teymi? Þarftu að styrkja öryggisteymið, bæta vöktun eða ljúka afmörkuðu verkefni? Sendu Talents stutta lýsingu á kerfinu sem um ræðir, hver sinnir því í dag og hvenær þú þarft aðstoð. Við förum yfir þörfina með þér, finnum sérfræðing með reynslu sem nýtist teyminu þínu og leggjum til fyrsta verkefnið.
Deila grein: