Til baka í Innsýn
    Tékklisti! Hvernig færðu gervigreindina til að finna vefinn þinn?
    Tækni

    Tékklisti! Hvernig færðu gervigreindina til að finna vefinn þinn?

    Þessi grein er skrifuð fyrir eigendur og stjórnendur fyrirtækja sem vilja vita hvort gervigreindin nefnir fyrirtækið þeirra þegar viðskiptavinir leita að þjónustu. Við sýnum hvernig þú getur gert vefinn aðgengilegan leitarvélum og svarað þeim spurningum sem viðskiptavinir spyrja um verð, þjónustu og afgreiðslutíma. Við skoðum líka hvaða máli umsagnir og umfjöllun á öðrum vefjum skipta og hvernig þú getur fylgst með tvennu án endurgjalds: hvort fyrirtækið birtist í svörum gervigreindarinnar og hvort fólk ratar þaðan inn á vefinn þinn.

    Viðskiptavinir þínir spyrja nú gervigreindina

    Stöðugt fleiri byrja vefvafrið á því að spyrja ChatGPT, Perplexity, Gemini eða Copilot, eða fá svarið beint í AI Overviews efst á Google. Samantektin kemur í stað tíu blárra tengla en hvað gerist næst?

    Í könnun Signicat meðal 4.050 evrópskra neytenda, segjast 65% vilja aðstoð gervigreindar, til dæmis við að leita upplýsinga. En aðeins 19% myndu hins vegar treysta henni til að klára að kaupa vöru fyrir sig og 8% þegar um dýrari kaup er að ræða. Gervigreindin ræður því hverjir komast á blað, viðskiptavinurinn velur svo í kjölfarið hverjum hann treystir.

    Ef fyrirtækið þitt er ekki á þeim lista ertu ekki með í samanburðinum. Þessi grein fer yfir hvernig þú eykur líkurnar á að gervigreindin finni vefinn þinn og nefni ykkur, og hvernig þú getur mælt árangurinn.


    Hvernig velur gervigreindin hverja hún nefnir?

    Gervigreindarsvör byggja á tveimur hlutum. Fyrst því sem mállíkanið lærði við þjálfun og síðan því sem það sækir í rauntíma á netinu. Fyrri hlutinn breytist hægt, en sá seinni getur breyst um leið og vefurinn þinn batnar.

    Þegar gervigreindin leitar á netinu sækist hún eftir heimildum sem hún getur lesið, það er síðum sem skriðlar komast á og eru ekki fastar í JavaScript eða PDF-skjölum. Hún vill líka síður sem svara spurningunni beint með skýrum fullyrðingum, tölum og dæmum.

    Loks vegur þungt að aðrir staðfesti það sem þú segir. Fyrirtæki sem eru nefnd á öðrum vefjum, í fjölmiðlum, á umsagnasíðum og listum eru líklegri til að rata í svörin.

    Góð leitarvélabestun á tímum gervigreindar byrjar á sömu spurningu og áður. Hvað vill viðskiptavinurinn vita þegar hann leitar? Svo Gamla SEO-vinnan skiptir því enn miklu máli. Hugtakinu GEO (generative engine optimization) er oft lýst sem næsta skrefi ofan á hana, ekki í stað hennar.


    Fyrsta skrefið: hleyptu skriðlunum inn

    Ef þú vilt að ChatGPT geti sótt upplýsingar beint á vefinn þinn þarf leitarskriðillinn að komast að efninu. Margir vefir loka óvart á AI-skriðla, oft vegna sjálfgefinna stillinga í Cloudflare eða gamallar robots.txt-skrár. Ef vefumsjónin er í höndum samstarfsaðila er gott að vita hver hefur aðgang að léninu og DNS-stillingunum og hver getur breytt stillingum eldveggsins.

    Helstu skriðlarnir eru OAI-SearchBot og ChatGPT-User frá OpenAI, sem sækja efni fyrir leit og rauntímasvör í ChatGPT, og GPTBot, sem OpenAI notar til að þjálfa mállíkön. PerplexityBot sækir efni fyrir leit og tilvísanir í Perplexity, og ClaudeBot og Claude-SearchBot gera það sama fyrir Claude frá Anthropic. Hjá Google sér Googlebot um leit og AI Overviews, en Google-Extended stýrir notkun í Gemini. Bingbot frá Microsoft skiptir líka máli, því Copilot og ChatGPT byggja að hluta á Bing.

    Byrjaðu á því að athuga robots.txt og stillingar í Cloudflare eða öðrum eldvegg, og leyfðu að minnsta kosti leitarskriðlana. Skráðu vefinn síðan í Google Search Console og Bing Webmaster Tools. Bing gleymist oft, en Copilot og fleiri AI-leitarvélar byggja á því.

    Hafðu mikilvægasta textann í HTML, ekki einungis í myndum, PDF-skjölum eða efni sem birtist aðeins eftir að JavaScript keyrir. Notaðu skipulögð gögn, schema markup (schema.org) fyrir fyrirtækið, þjónustuna og algengar spurningar, svo vélarnar skilji hvað þið bjóðið. Haltu vefnum loks hröðum, með skýrri uppbyggingu og lýsandi fyrirsögnum.


    Skrifaðu efni sem gervigreindin vill vitna í

    Gervigreindin vitnar í síður sem svara nákvæmlega því sem spurt er um. Almennur markaðstexti eins og „Við erum leiðandi í lausnum“ gefur henni ekkert til að vinna með.

    Byrjaðu á svarinu. Fyrsta setning hverrar síðu og hvers kafla á að segja hvað þið gerið, fyrir hverja og hvar. Svaraðu líka þeim spurningum sem viðskiptavinir spyrja í raun, til dæmis „Hvað kostar að útvista þjónustuveri?“ eða „Hversu fljótt er hægt að fá starfsfólk?“, helst með einni síðu eða einum kafla fyrir hverja spurningu.

    Notaðu tölur og staðreyndir frekar en lýsingarorð. Svörunartími, opnunartími, fjöldi starfsmanna, verðbil og raunveruleg dæmi eru mun líklegri til að rata í svör. Sérhæfðu þig líka: „Fjarþjónustuver fyrir íslensk fyrirtæki“ er betra en „þjónustulausnir“, því þörf og staðsetning í sömu setningu hjálpa vélinni að tengja ykkur við réttu spurningarnar.

    Skrifaðu bæði á íslensku og ensku, því mörg fyrirtæki leita á ensku og gervigreindin hefur mun meira enskt efni til að vinna úr. Loks skiptir máli að aðrir nefni ykkur. Umfjöllun í fjölmiðlum, umsagnir á Google, fyrirtækjaskrár, LinkedIn og samanburðargreinar vega þungt, því gervigreindin treystir því sem margar heimildir segja.


    Hvernig veistu hvort það virkar?

    Svipað og Semrush hefur lengi mælt stöðu í Google eru nú til tól sem mæla hversu oft gervigreindin nefnir fyrirtækið. Þau senda reglulega spurningar á ChatGPT, Perplexity, Gemini og AI Overviews og telja tilvísanir, borið saman við samkeppnisaðila.

    Semrush AI Toolkit hentar best þeim sem nota Semrush nú þegar. Það sýnir hlutdeild ykkar í svörunum („share of voice“) og hvaða síður eru notaðar sem heimildir. Ahrefs Brand Radar gerir svipað fyrir þá sem nota Ahrefs og mælir nefningar í AI Overviews, ChatGPT, Perplexity og víðar.

    Einnig eru til tól sem eru byggð sérstaklega í þetta. Otterly.AI er einfalt og ódýrt í byrjun og hentar minni fyrirtækjum vel. Peec AI hentar litlum og meðalstórum teymum og býður góðan samanburð við samkeppnisaðila. Profound er ítarlegast en jafnframt dýrast og hugsað fyrir stærri fyrirtæki, og Scrunch AI leggur áherslu á hvernig vörumerkið er kynnt í svörunum.

    Verð og eiginleikar breytast hratt á þessu sviði, svo það borgar sig að skoða nýjustu upplýsingar hjá hverjum og einum. Tólin eru líka langsterkust á ensku og mæla íslenskar spurningar oft illa.


    Aðrar og ókeypis leiðir

    Í Google Analytics 4 sérðu vísanir frá chatgpt.com, perplexity.ai, gemini.google.com og copilot.microsoft.com, og þar með hvort fólk smellir raunverulega yfir á vefinn. Sérðu þessar tölur sjálf eða sjálfur? Ef stofa sér um mælingarnar fyrir þig er þess virði að kanna hver hefur umsjón með Google-reikningum fyrirtækisins. Í server-logs eða Cloudflare sérðu hvort skriðlarnir sem nefndir eru hér að ofan heimsækja vefinn. Loks er gott að gera lista yfir 10 til 20 spurningar sem væntanlegir viðskiptavinir spyrja, á íslensku og ensku, keyra þær mánaðarlega og skrá hverjir eru nefndir.


    Í stuttu máli

    Tryggðu að AI-skriðlar hafi aðgang að vefnum og að hann sé skráður hjá Google og Bing. Hafðu lykilefnið í HTML með schema.org-merkingum og láttu hverja þjónustusíðu byrja á skýru svari um hvað þið gerið, fyrir hverja og hvar. Svaraðu algengum spurningum á íslensku og ensku, fáðu aðra til að nefna ykkur og mældu árangurinn í GA4 og með mánaðarlegum prófunum.

    Viltu vita hvort gervigreindin finnur fyrirtækið þitt? Sendu okkur veffangið og tvær eða þrjár spurningar sem viðskiptavinir þínir spyrja oft. Þá getum við skoðað hvernig vefurinn svarar þeim og hvar borgar sig að byrja. Hafðu samband á contact@talents.is.

    Deila grein:

    Talents

    Talents hjálpar íslenskum fyrirtækjum að auka afkastagetu og einfalda reksturinn með sérfræðiþjónustu, sjálfvirkni og þróun öruggra tæknilausna.

    Hafa samband

    Póstlisti

    Skráðu þig á póstlista Talents til að fá fréttir og tilboð.

    © 2025 Talents ehf. kt. 5908240890 vsk nr. 156074. Öll réttindi áskilin.

    PersónuverndSkilmálar